Þetta verkefni er í vinnslu!
Hugmynd
Í góða veðrinu á Íslandi er gerist það stundum að gróðurhús verða of heit. Pabbi minn er garðyrkjumaður og datt honum þetta í hug fyrir okkur til að vinna í. Arduino talva sem opnar og lokar glugga eftir hitastigi.
Útfærsla
Það voru nokkrar pælingar varðandi hvernig væri best að útfæra lausnina sem opnar gluggan. Mótor að tosa spotta til að opna og loka og fleira. En við enduðum á að kaupa bara 12V rafmagns tjakk. Tjakkinum er stjórnað með motor controller sem tekur merki frá tveim pinnum frá Arduino Nano tölvu sem segir honum að keyra inn eða út. Svo er hitamælir tengdur við Arduino tölvuna sem verður lesið af hitastig til að annaðhvort opna eða loka glugga, og skjár til að geta breytt markhitastiginu. Að lokum verður rofi til að rífa straum á Arduino tölvuna, og tveir rofar til að handvirkt keyra tjakkinn inn eða út.
Staða
Hitamælir og pinnar fyrir stjórn á motor hafa verið lóðaðir við tölvuna og hefur verið prufað hvort hitamælirinn les rétt og hvort lógíkin virkar til að opna og loka. Næstu skref eru að kaupa rofa og skjá til að koma öllu að lokum í hýsingu. Einnig er verið að smíða nýjan glugga í gróðurhúsið sem snýst á miðju til að auðvelda uppsetningu tjakksins.