Yfirlit
Ég og 5 aðrir vinir fengum tækifæri að vinna lokaverkefni okkar í HR hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Reon. Verkefnið fól í sér að taka að okkur ókláraða beta vöru og þróa og bæta hana og skila af okkur tilbúnri vöru. Safe Space er tól fyrir fyrirtæki og teymi til að halda utan um vellíða og velgengni teyma innan verkefna, og gefa þar með tölfræði til að teymisstjóri geti tekið eftir mögulegri niðurleið í vellíða eða velgengi teyma, og þá greint enn frekar hvers vegna það er.
Ferlið er nokkuð einfalt. Teymisstjóri setur upp könnun í gang og birtir þá QR kóða á skjá eða skjávarpa, teymismeðlimir skanna og fara þá á í gegnum könnunar ferli. Þar svara þau spurningum sem teymisleiðtogi hefur sett fyrir á skalanum 1-5 (ósammála-sammála) og hafa valmöguleika á að bæta við athugasemd.
Verkefni
Ég ætla ekki of djúpt í hvað verkefnið okkar var þar sem það er farið mjög ítarlega yfir það í skýrslunni. Hún er aðgengileg í Skemmunni og er hlekkur fyrir ofan. Í stuttu máli bættum við við mörgum eiginleikum í kerfið, eins og athugasemdakerfi, stuðningur við marga teymisleiðtoga í teymi og boðkerfið fyrir það, innleiddum Stripe greiðslugátt, og fórum yfir alla hönnun og notendaupplifun kerfissins.
Reynslan
Ég er virkilega þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna slíkt verkefni með góðu fólki í samstarfi við svona flott fyrirtæki, og þá reynsluna sem fylgdi því. Það var virkilega gaman og spennandi að koma í fyrsta skiptið inn í raunverulegt umhverfi þar sem hugbúnaður er þróaður. Agile ferlið með vikulegum standup fundum, raunveruleg notkun á git og pull requestum, og að koma að hálfkláruðum kóða, stendur út sem helsta og mikilvægasta reynslan sem ég öðlaðist á þessu verkefni.
Ég er enn og aftur, virkilega þakklátur fyrir þetta verkefni, og Reon fyrir að hafa tekið svona vel á móti okkur, og gefið okkur svona góða aðstöðu til að vinna.

